Marathon pick-up pallar
Alltaf að hugsa um næstu ferð með sleðann til fjalla? Eða ertu meiri fjórhjólamaður sem fær aldrei nóg? Ekkert vesen lengur með öxla og fjöðrunarvandamál á kerrum eða að sitja fastur í skafli með 500 kg kerru í eftirdragi. Marathon pallarnir hjálpa þér að komast hvert sem ferðinni er heitið – af þjóðveginum og inn á hina margvíslegu vegslóða. Einfaldlega keyra leiktækið upp á pallinn, binda niður og af stað.
Þyngd 157 kg (með rampi)
Lengd gert fyrir flestar gerðir 6, 7 eða 8 feta pick-up bíla
LED ljósabúnaður
Hægt að stækka út hliðar
3 metra langur rampur |