Polaris sleðarnir sýnu yfirburði sína enn á ný þegar Todd Minnick og Nick Olstad unnu hina árlega 3172 kílómetra löngu Tesoro Iron Dog keppnina í Alaska á nýju meti. Félagarnir kláruðu keppnina laugardaginn 14 febrúar í Fairbanks á 37 klukkustundum, 19 mínútum og 8 sekúndum á 2009 Polaris Dragon SP 600. Fyrra metið var 38:07:57, sett árið 2007
Fjögur keppnislið frá Polaris voru meðal þeirra 10 efstu í Pro Class en sigurinn er sá elleftir fyrir Polaris á þeim 25 árum sem keppnin hefur verið haldin – sem er hæsta hlutfall allra framleiðanda.
“Iron Dog keppnin er vitnisburður um gæði og áreiðanleika Polaris sleðanna” sagði Scott Swenson framkvæmdarstjóri sleðadeildar Polaris. “Todd og Nick sýndu baráttuhug sinn með því að vinna þessa keppni og við erum ákaflega stoltir að þeim fyrir að setja Polaris aftur á toppinn í þessari keppni”.
Erfiðasta sleðakeppni í heimi
Iron Dog lifir vel undir viðurnefni sínu sem erfiðasta sleðakeppni í heimi. Keppendur keyra aðallega yfir gróft og ófyrirsjánlegt landsvæði og þá oft í myrkri í allt að -40° frosti þannig að vindkælingin verður nánast óbærileg þegar keppendur keyra á allt að 160 kílómetra hraða þegar aðstæður leyfa. Ennig er ekki óvanalegt að keppendur þurfi á sama deginum að keyra í öllu frá djúpum púður-snjó, harðpökkuðum hjarni, frosnum ám, krapa og yfir opnar ár og vötn.
Keppnin þetta árið einkenndist af miklum stormi sem blés inn á land af Barentshafi og varð þess valdandi að fjögur lið urðu að hætta þáttöku eftir að þrír ökumenn slöðusust í slysum sem rekja má til stormsins.
Iron Dog liðin urðu að keyra í gegnum 23 eftirlitsstöðvar og urðu í ofanálag að hafa með sér björgunarbúað ef liðin ské kynni að liðin lentu í vanda á milli stöðva.
Fjögur Polaris lið á topp tíu á meðal sigurvegaranna voru fjögur lið frá Polaris í 2009 Iron Dog:
• Mike Morgan, 23 ára, frá Anchorage, Alaska, ogTyler Huntington, 23 ára, ´frá Galena, Alaska, enduðu í fimmta sæti á Polaris Dragon SP 600 á 39:57:47.
• Shane Barber, 34 ára, frá Anchorage, og Stevan White, 31 ára, frá Willow, Alaska, enduðu í sjöunda sæti á Polaris sleðum á 42:29:07.
• Chris Olds, 37 ára, frá Eagle River, Alaska, og Matthew Spernak, 24 ára, frá Anchorage, enduðu í 10 sæti á Polaris Dragon SP 600 á 46:56:29.
Í 15 sæti á Polaris voru þeir Ralph Wright, 61 ára og James Wilbur, 42 ára. Þeir enduðu keppnina á 61:25:28.
|