Fyrsta sleðaferð Stormsveitarinnar

- Ljósufjöll á Sæfelssnesi -

Helgina 27.feb - 1. mars 2009 verður fyrsta skipulagða sleðaferð Stormsveitarinnar um Ljósufjöll á Snæfellsnesi.
Gist verður í félagsheimilinu Skyldi sem er um 7km fyrir utan Stykkishólm. Mæting þar á föstudagskvöldi. Ef snjóalög leifa þá er hægt að taka sleðana af þar á planinu. Annars er ca 10mín akstur í bíl frá Skyldi uppí Kerlingarskarð. Farið verður um svæðið á laugardag og sunnudag undir tryggri leiðsögn heima manna sem gjörþekkja hverja þúfu og segja sögur af tröllum og álfum sem þar búa.

Hver og einn sér um sinn kost, matur, drykk og eldsneyti. Grill verður á staðnum sem kveikt verður upp í á laugardagskvöldið. Verð á gistingu er kr 1000.- nóttin á mann. Þetta er eingöngu svefnpokapláss en eldunaraðstaða er einnig á staðnum.

Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst. Sendið skráningu á gunnar@stormur.is Takið fram fjölda og símanúmer. Fjöldi þáttakenda verður takmarkaður.

StormSveitin.

Stormur ehf. I Kletthálsi 15 I 110 Reykjavík I Sími: 577-1717 I stormur@stormur.is