Heimamenn sýndu á sér allar sýnar bestu hliðar svo um munaði . Hér er Eddi Strandatröll á Dragon 800 að setja "allt" á annan endann í Indíánadal.
Mynd Þór Ostensen

 

Ferð Stormsveitarinnar í Ljósufjöll 27. feb-1.mars.

- Frábær helgi að baki með frábæru fólki -

Stormsveitin lagði af stað á föstudagskvöldinu og gisti í félagsheimilinu Skildi sem stendur rétt utan við Stykkishólm. Þar var boðið uppá svefnpokapláss og fína eldunaraðstöðu, og þökkum við kærlega fyrir afnotin af félagsheimilinu.

Við vorum búnir að fá til liðs við okkur vana heimamenn sem leiðsögumenn, sem við kunnum miklar þakkir fyrir vel unnin störf. Þetta voru þeir: Kristján í Stykkishólmi, oft kallaður Kristján slít og Nonni sem við köllum alltaf: Nonni Hólmavík enda kemur kappinn þaðan.

Á Laugardagsmorguninn var haldið af stað kl 9 og keyrt uppí Kerlingarskarð þar sem við tókum af. Þaðan var smá þræðingur meðfram veginum fyrst, en svo þegar ofar var komið var mjög góður snjór og fullt af púðri.

Kristján yfir leiðsögumaður fór fyrir ferðinni lengst af og höfðum við viðkomu á ýmsum stöðum svo sem uppá Hreggnasa, um Draugadali, framhjá Botna Skyrtunnu, upp að Hesti og Skyrtunnu, í Indjánadal sem er mjög fallegur dalur með nokkrum klettadröngum. Í Indíanadal var allgjör púðurtunna og sátu sumir þar fastir í púðrinu - Allavega sá sem þetta ritar, og nokkrir fleiri.

Gunni Vald á alltof stórum sleða . . . eða búinn að grafa sér alltof stóra holu

Það verður að segjast að þetta svæði er eitt af skemmtilegustu sleðasvæðum sem við höfum komið á til þessa. Þarna er allt sem hugurinn girnist til að sleðast í: Púður dalir, brekkur bæði langar og brattar, hengjur til að stökkva í, langir rússíbanar, gil, skorningar, og svo auðvitað kerlingar, í Kerlingaskarði. Hvað viljið þið hafa það betra?

Eftir góðan renning á laugardegi var haldið niður í Skjöld aftur og þar grillað var og borðað. Eftir kvöldmat var svo rennt út í Bjarnarhöfn til að skoða Hákarlasafnið sem þar er, og til að smakka á hinum ýmsu góðgætum, svo sem hákarl og harðfisk. Að sjálfsögðu var sölumaður á staðnum, þannig að einginn komst út fyrr en að hann hafði keypt svolítið að hákarli og harðfisk, til að aðrir fengju að smakka líka. Þökkum við þeim kærlega fyrir að opna sfnið fyrir okkur svona seint á laugardagskvöldi.

Á sunnudeginum var svo haldið út á Vatnaheiði og farið í vestur átt sem reyndist svo ekki síðra heldur en Ljósufjöllin. Þá bættist við í hópinn annar leiðsögumaður frá Grundarfirði sem heitir Finnbogi. Hann og Kristján leiddu okkur eftir fjallstoppum, skörðum og dölum þar til að við vorum komnir ofan við Grundarfjörð og horfðum niður á þorpið og niður á Kirkjufellið. Að því loknu var haldið áleiðis til baka til að sleppa við hríðina sem var að koma yfir.

Held ég að ég mæli fyrir munn allra sem tóku þátt í þessari ferð, að þetta hafi verið mjög vel heppnuð ferð í alla staði. Og fyrir hönd okkar allra 26 sem tóku þátt þá þakka ég fyrir allt og þá sérstaklega þeim leiðsögumönnum Kristjáni, Nonna og Finnboga fyrir frábæra helgi sem og fyrir dvölina í félagsheimilinu Skildi.

Gunni Vald

 

Fleiri myndir í boði Þórs Ostensen hirðljósmyndara Stormsveitarinnar er að finna hér >

 

Stormur ehf. I Kletthálsi 15 I 110 Reykjavík I Sími: 577-1717 I stormur@stormur.is