Farið verður á fimmtudagskvöldi 16. apríl og gist á Hólmavík . Snemma á föstudagsmorgni er svo keyrt uppá Steingrímsfjarðarheið þar sem tekið er af. Farið er um svæðið með heimamönnum sem leiða túrinn og endað um
kvöldið í Reykjafirði þar sem gist verður og baðað. Á laugardeginum er svo aftur farið í leiðangur með heima-
mönnunum og verður veðrið látið ráða för. Komið er til baka í kvöldmat og bað í Reykjafirði og aftur gist þar í skála
í svefnpokaplássi. Á sunnudeginum er haldið til baka í bílana.
Sameiginleg grillmáltíð verður svo haldin á laugardagskvöldið en hver og einn verður að sjá sjálfur um restina
af sínum mat og eldsneyti.
Hver sleði að hafa fullan tank + 100 lítra auka. Menn verða svo að sameinast um að koma aukabensíninu á staðinn
en verið er að skoða hvernig þessum málum verður háttað.

Sundlaugin í Reykjafirði
Það er mjög mikilvægt að menn skrái sig hjá Gunna í Stormi og greiði 3000 kr staðfestingargjald sem rennur
upp í kostnað við grillmáltíðina. Sendið skráningu á gunnar@stormur.is eða hringið í síma 577 1715
Gisting á Hólmavík á fimmtudagskvöldi með morgunmat á föstudagsmorgni kostar kr 2800 kr
Gisting í Reykjafirði 2 nætur kostar 4000 kr á mann. Eldunaraðstaða er á staðnum og sundlaug.
Fjöldi þáttakenda verður takmarkaður.
Athugið að þessi ferð er ekki fyrir óvana sleðamenn.
StormSveitin.
|