Stormur ehf

Stormur ehf var stofnað þann 15. október 2004. Það er fjölskylda Skúla Karlssonar sem standa á bak við fyrirtækið. Bræðurnir Ormson voru umboðsaðilar fyrir Polaris frá árinu 2001 en eigendaskipti urðu á fyrirtækinu haustið 2004 og í framhaldi af því keyptu Skúli og fjölskylda rekstur og tæki sem tilheyrðu Polaris. Í lok nóvember sama ár flutti fyrirtækið í nýtt og rúmgott húsnæði að Kletthálsi 15.

Áralöng þjónusta og þekking á Polaris tækjum einkenna fyrirtækið enda bæði sleðar og hjól verið söluhæst á landinu undanfarin ár.

Hjá Stormi starfa níu starfsmenn en samanlögð reynsla þeirra í þjónustu Polaris telst í tugum ára. Það er markmið okkar að halda því forskoti sem við höfum á keppinauta okkar með góðri þjónustu og faglegum vinnubrögðum.

Stormur ehf. Kletthálsi 15 110 Reykjavík
Sími: 577-1717
Kt. 570904 2050
Vsk no. 84433
Bankareikn no 331-26-2050



Stormur ehf. I Kletthálsi 15 I 110 Reykjavík I Sími: 577-1717 I stormur@stormur